Beauty and me.

Núna vill hún kaupa Beauty aftur, eitthvað er það nú grunsamlegt. Ég keypti hana fyrir tveimur árum, horaða og stygga. Hún sagist hafa selt hana til Ohio en tekið aftur þegar hún fékk ekki borgun. Beauty fundaði svo með graðfolanum hjá henni áður en að hún kom hingað og í fyrravor fæddist merarfolald sem fékk nafnið Agata (pólskt). Beauty fór þá til fundar við annan fola og fyrir tveimur dögum fæddist hest folald. Ég sendi konunni skeyti og fékk til baka beiðni um að selja henni Beauty aftur.  Og hvers vegna, grun um að ættin hennar sé að komast í tísku eða að náskyldur hestur unnið verðlaun. En rétt skal vera rétt, ég fékk Beauty fyrir slikk (1500$) vegna þess að konan var í vandræðum, með of margar merar og þurfti pening. Svo ef merin er verðmætari er ættin hennar og rétt að hún njóti þess. Ég með meri og hest undan henni þó við vitum auðvitað ekki hvernig rætist úr þeim, ættin ekki alltaf allt eins og við vitum.  Einnig er Beauty með smágalla og kannski ekki sniðugt að gera hana að uppistöðunni í minni ætt, saumur eða ráka niður báða framhófa fyrir miðju. Engin aðskilnaðir eða sprunga en saumur samt. Hvorugt afkvæmanna  erfði gallann. 

Svo ég sel Beauty. Hún vill selja mér 15 ára graðhest af góðum ættum, en ég hef lítinn áhuga. Búinn að fá loforð um að ég megi nota hann gegn gjaldi. Ná í hann og setja hjá mínum merum. Er það ekki nóg, fá einn árgang frá honum og svo ekki söguna meir? Það hefði ég haldið.

En hvað ef að þessi hestur sem heitir Ransom 06 er meiriháttar? Nóg að pæla í sveitinni. Kv. Ingimundur Kjarval  Set inn mynd af honum seinna. Ég og konan ætlum að skreppa á sunnudagskaffi og kíkja á kauða, taka myndir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Bara að kvitta, var að lesa sjúkraskýrslur Kjarvals. 

Til lukku með gott gengi í hrossaræktinni. 


Fríða Eyland, 21.9.2007 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband